Opnunartími skrifstofu, mánudaga til föstudaga frá kl. 09:00 til 16:00. Sími 483 5800 - byr@byrfasteign.is
Eigandi Byr fasteignassölu er Elín Káradóttir, hún er löggiltur fasteignasali og ábyrgðarmaður.
Skrifstofan er í Austurmörk 7 í Hveragerði.
Áhersla er lögð á að veita kaupendum og seljendum góða, persónulega og faglega þjónustu.
Nánari upplýsingar um fyrirtækið:
Byr fasteignasala ehf. kt 540218-0480
Vsk nr. 130651
Eftirfarandi gjaldskrá gildir nema um annað hafi verið samið.
Viðskiptaþóknun vegna:
Almennrar sölu er 2,5% af söluverði eignarinnar.
Einkasölu er 1,8% af söluverði eignarinnar.
Sölu á sumarhúsum er 4% af söluverði eignarinnar.
Söluþóknun er þó aldrei lægri en kr. 450.000,- m.vsk. (skjalagerð). Eign sem áður hefur verið seld í makaskiptum hefur 1,7% söluþóknun.
Seljandi greiðir fast grunngjald kr. 54.000,- m.vsk. hvort sem eignin selst hjá Byr fasteignasölu eða ekki.
Kaupandi greiðir umsýslugjald kr. 69.900,- m.vsk. í því gjaldi felst aðstoð og ráðgjöf við kauptilboðsgerð, þinglýsingu kaupsamnings og afsals. Einnig milliganga við lánastofnanir, gerð veðleyfa og annarra skjala er varða kaupanda.
Tímagjald fasteignasala er kr. 24.800,- m.vsk. Greiðist við eftirfarandi aðstæður: Gerð umboða, veðleyfa skuldabréfa og veðbandslausna, nema ef það tengist kaupsamningsgerð. Munnleg ráðgjöf og leiðbeiningar.
Gerð verðmats er kr. 45.000,- m.vsk.