Byr fasteignasala kynnir VALSHEIÐI 19, Hveragerði. Sjö herbergja einbýlishús (5 svefnherbergi) á tveimur hæðum með útsýni til allra átta á vinsælum stað í Hveragerði, innbyggður bílskúr. Húsið er steypt, byggt árið 2006. Húsið skiptist í íbúð á neðri hæð 119
m², bílskúr 21,4 m² og efri hæð 96,4 m², samtals 236,8 m² samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.
Gólfflötur eignarinnar er þó í raun stærri en skráning segir til um eða u.þ.b. 273 m², þar sem efri hæð er að hluta til undir súð.
Skipulag eignar: anddyri, alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu, fimm svefnherbergi, baðherbergi, sjónvarpshol, gestasalerni, þvottahús og bílskúr.
Áætlað fasteignamat ársins 2023 verður kr. 100.100.000,-Neðri hæð:Komið er inn í opið
anddyri, þar er fatahengi ásamt tveimur skápum, annar skápurinn er fataskápur með rennihurð, hinn er skó- og „húfuskápur" með rennihurð.
Eldhús með Alno innréttingu, tækjaskápur, stálvaskur, nýlegt spansuðu helluborð, ofn í vinnuhæð, gert er ráð fyrir uppþvottavél og amerískum ísskáp í innréttingu (getur mögulega fylgt,ef um samið).
Stofa og borðstofa eru saman í opnu rými, útgengt er frá stofu út á timburverönd með heitum potti.
Svefnherbergi á neðri hæð, rúmgóður frístandandi fataskápur.
Gestasalerni með vegghengdu salerni og handlaug.
Þvottahús, tengi fyrir þrjár vélar, stálvaskur í borði. Útgengt á lóð frá þvottahúsi, einnig er innangengt þaðan í bílskúr.
Bílskúr, epoxy á gólfi, rafmagnstafla og hitainntök eru í bílskúr. Rafmagnshurðaopnari, tvær fjarstýringar fylgja, 3-fasa rafmagn.
Sérsmíðaður
hringstigi tengir saman hæðir hússins.
Efri hæð:
Gangur liggur frá stiga að baðherbergi og svefnherbergjum á efri hæð.
Rúmgott
sjónvarpshol er við stiga.
Fjögur svefnherbergi eru á efri hæðinni. Frístandandi fataskápar eru í öllum svefnherbergjum efri hæðar.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, vaskinnrétting, vegghengt salerni, hornbaðkar með innbyggðum tækjum, sturta með útsýni.
Svalir eru við enda gangs, þaðan er hægt að ganga niður stiga í bakgarð. Tvöfaldur fataskápur er við svalir.
Gólfhiti er í allri eigninni, einnig bílskúr,
Danfoss hitastýringar eru í hverju rými fyrir sig.
Gólfefni, flísar eru á öllum rýmum eignarinnar nema bílskúr þar er epoxy á gólfi.
Innbyggð lýsing er í allri eigninni, nýlegar led perur eru í nánast öllum innbyggðum ljósum. Ljósleiðari er í eigninni, cat tengi er í öllum svefnherbergjum.
Lóðin er nánast fullfrágengin með
rúmgóðri afgirtri timburverönd til suðurs og vesturs. Hellulagt er bæði framan við og norðan megin við húsið,
upphituð stétt á bílastæði og gönguleiðum framan við húsið. Ecoraster hellur í bílastæði meðfram húsi. Pláss er fyrir fjögur ökutæki.
Rafmagnspottur frá árinu 2019 er á verönd.
Gróðurhús er á baklóð hússins. Vifta til kælingar er í gróðurhúsi, gróðurhúsið er sérstyrkt fyrir veður. Borið var á gólf verandar sumarið 2021, borið var á glugga á suðurhlið sumarið 2020. Útiljós við inngang eru stillt með sólarúri.
Rúmgott sjö herbergja einbýlishús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr, möguleiki er á að bæta við svefnherbergi á efri hæð ef vill.
Vinsæll staður í Hveragerði,
stutt í náttúru og útivist, góðar gönguleiðir. Ýtið hér fyrir staðsetningu.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 483 5800 - [email protected]
Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – [email protected]
Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - [email protected]
Atli Geir Sverrisson, aðstoðarmaður fasteignasala / í námi til löggildingar - [email protected]
Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
www.byrfasteign.is | Austurmörk 7, 810 Hveragerði | Byr fasteignasala