Elín Káradóttir
Eigandi og löggiltur fasteignasali
Símanúmer: 859-5885
Mánamörk 3-5 bil 3 , 810 Hveragerði
44.400.000 Kr.
Atvinnuhús/ Lager - Iðnaðarhúsnæði
0 herb.
98 m2
44.400.000
Stofur
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2008
Brunabótamat
31.050.000
Fasteignamat
17.850.000

BYR fasteignasala kynnir MÁNAMÖRK 3-5 BIL 03, í einkasölu. Húsnæðinu er skipt í tvö bil í dag, iðnaðarhúsnæði/verkstæði annars vegar og skrifstofu/íbúð hins vegar. Ýtið hér fyrir staðsetningu. 
Skráð verkstæði í iðnaðarhúsi sem stendur á iðnaðar- og athafnalóði miðsvæðis í Hveragerði. 
Notkun eignar er skráð iðnaður skráð 98,9 m², húsið er byggt árið 2008 samkvæmt skráningu Þjóðskár Íslands.  
Skipulag eignar: Iðnaðarhúsnæði/verkstæðisrými með salernisaðstöðu og skrifstofu/íbúðarrými með alrými og baðherbergi.    

Rýminu hefur verið skipt upp í tvö rými;
Verkstæðis- iðnaðarrými:
Opið rými með aflokuðu salerni.
Ný máluð gólf, niðurfall. Snyrting með salerni og handlaug, flísar á gólfi. 
Stór innkeyrsluhurð, með gönguhurð. Stærð hurðar er u.þ.b. breidd 4.8 metrar, hæð 4.8 metrar, rafmagnsopnun. 3-fasa rafmagnstengill, heitt og kalt vatn. Brunaslanga. 

Íbúðar/skrifstofurými: anddyri, alrými og baðherbergi.
Alrými með harðparketi á gólfi. Eldhúsinnrétting er aflokuð með harmonikkuhurðum, lítil innrétting með stálvask, tveimur hellum, gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu. anddyri með flísum á gólfi. 
Baðherbergi með salerni, sturtu og vaskinnréttingu, speglaskápur flísar á gólfi. 
Inntaksrými er í aflokuðum skáp í anddyri. 

Húsið er samkvæmt Þjóðskrá Íslands skráð sem verkstæði. Undirstöður og gólfplata eru úr járnbentri steinsteypu. Burðarvirki hússins er stálgrind. Þak er bárujárnsklætt. Malbikuð lóð í sameign er við eignina. Við hvert bil eru tvö bílastæði

Lóðin er í sameign allra, 3070,3 m² leigulóð frá Hveragerðisbæ. Lóðarleigusamningur er til 50 ára frá 20.5.2008. 32 bílastæði eru á lóðinni þar af eitt fyrir hreyfihamlaða. Sérafnotafletir á lóð eru fyrir framan innkeyrsludyr séreigna, með vesturhlið hússins og suðurhlið lóðar, sjá nánar litamerkingu í eignarskiptayfirlýsingu. Hver eign sér um viðhald og umhirðu viðkomandi sérafnotaflatar. 

Snyrtilegt og vel við haldið húsnæði, nýtingarmöguleikar eru ýmsir; íbúð með vinnustofu/verkstæði, eða skrifstofa með vinnustofu/verkstæði. Íbúðar/skrifstofuhlut eignarinnar er í útleigu til september 2023. 
Möguleiki á góðum leigutekjum. 


ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 483 5800 - [email protected] 
Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – [email protected]
Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - [email protected]
Sigurbjörg Halla Sigurjónsdóttir, aðstoðarmaður fasteignasala - [email protected]

Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.

Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.        
Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
 
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi -  0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga  / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

www.byrfasteign.is |  Austurmörk 7, 810 Hveragerði | Byr fasteignasala

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.