BYR fasteignasala kynnir EDENMÖRK 5, ÍBÚÐ 0203 í einkasölu. Ný þriggja herbergja íbúð á annarri hæð, í þriggja hæða lyftuhúsi miðsvæðis í Edenbyggð í hjarta Hveragerðis. Snyrtileg, vel skipulögð og björt íbúð, stutt í alla almenna þjónustu og útivistarsvæði, stutt er á stoppistöð strætisvagna. Ýtið hér fyrir staðsetningu.Skipulag eignar: Anddyri, alrými með stofu og eldhúsi, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Í kjallara er sérgeymsla og sameiginlega vagna- og hjólageymsla.
ÍBÚÐIN ER LAUS TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING. Skráning eignarinnar hjá Þjóðskrá Íslands:Stærð: Íbúð 80,0 m²
Brunabótamat: 43.250.000kr.
Fasteignamat: 45.500.000 kr.
Byggingarár: 2022
Byggingarefni: Steypa
Anddyri með tvöföldum fataskáp, flísar á gólfi.
Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi. Útgengt er út á vestur svalir 11,7 m² úr stofu.
Eldhús er með AEG heimilistækjum, ofn í vinnuhæð, spanhelluborð og þunn útdraganleg vifta sem fellur undir efri skáp.
Stálvaskur og Grohe blöndunartæki. Sérsmíðuð eldhúsinnrétting.
Hjónaherbergi með fatakáp yfir heilan vegg. Barnaherbergi með tvöföldum fataskáp. Möguleiki er á því að setja upp þriðja svefnherbergið á kostnað stofu.
Baðherbergi með flísum á gólfi og hluti veggja (sturtuhorn). Salerni, vaskaskápur, speglaskápur, vegghengt salerni og sturta. Blöndunartæki frá Grohe.
Gólfefni: Vínylparket frá Birgisson er á alrými og svefnherbergjum. Flísar eru á anddyri og baðherbergi.
Í kjallara er
sérgeymsla 4,8 m² að stærð. Sameiginleg vagna- og hjólageymsla.
Lyfta er í kjallarann.
T.ark arkitektar eru aðalhönnuðir hússins. Edenmörk 5 er níu íbúða þriggja hæða hús. Allir útveggir ásamt veggjum á milli íbúða eru staðsteyptir.
Lóð er frágengin, sorptunnuskýli. Sett verður upp miðlægt torg á milli húsanna á svæðinu þar sem verða fjögur lítil gróðurhús sem íbúar svæðisins geta leigt af sveitarfélaginu til eigin nota. Bílastæði eru í sameign.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 483 5800 - [email protected]
Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – [email protected]
Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - [email protected]
Sigurbjörg Halla Sigurjónsdóttir, aðstoðarmaður fasteignasala - [email protected]
Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.
Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
www.byrfasteign.is | Austurmörk 7, 810 Hveragerði | Byr fasteignasala