BYR fasteignasala kynnir í einkasölu ÁLALÆKUR 4 - ÍBÚÐ 201, 800 Selfoss. Snyrtilegt þriggja herbergja íbúð með sérinngangi á efri hæð í fjórbýlishúsi, stutt í alla almenna þjónustu og útivist. Ýtið hér fyrir staðsetningu. EIGNIN ER LAUS TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING.Skipulag eignar: Anddyri, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, tvö svefnherbergi, baðherbergi, gangur, geymsla og þvottahús innan íbúðar. Í sameign er inntaksrými.
Skráning eignarinnar hjá Þjóðskrá Íslands:Stærð: íbúð, 102,8 m²
Brunabótamat: 48.800.000kr.
Fasteignamat: 53.500.000kr.
Byggingarár: 2017
Byggingarefni: Steypa
Nánari lýsing:
Anddyri með þreföldum fataskáp, frá anddyri er innangengt í þvottahús.
Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, útgengt er frá stofu út á svalir 12,1 m² samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.
Eldhús með KVIK innréttingu, Bosch spanhelluborð, háfur, Boch ofn í vinnuhæð, Bosch innbyggður ísskápur og innbyggð AEG uppþvottavél fylgir.
Svefnherbergin eru tvö.
Baðherbergi með vegghengu salerni, vaskinnréttingu, spegli og sturtu, veggir í sturtuhorni eru flísalagðir.
Gangur liggur frá alrými að svefnherbergjum, baðherbergi og geymslu
Þvottahús er innan íbúðar, tenging fyrir tvær vélar, vegghend snúra, gluggi. Gólfhitakista er í þvottahúsi.
Geymsla er innan íbúðar, fjórfaldur fataskápur með rennihurðum.
Gólfefni: Harðparket frá Birgisson er á alrými, gangi, svefnherbergjum og geymslu
. Flísar eru á anddyri, baðherbergi og þvottahúsi. Íbúðin er upphituð með gólfhitalögn, steypt í gólfplötu
.Gólfefni og hurðar eru frá Birgisson og eldhúsinnrétting úr KVIK. Aukin lofthæð er í íbúðinni. Allar gardínur í íbúðinni fylgja.
Álalækur 4 er steinsteypt fjórbýlishús á tveimur hæðum. Þak er flatt, klætt með dúk. Lóðin er sameiginleg eignarlóð Álalæks 2, 4 og 6. Alls eru 24 bílastæði í sameign á lóð. Lóð aftan við húsið er þökulögð.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 483 5800 - byr@byrfasteignasala.is
Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – elin@byrfasteignasala.is
Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - hronn@byrfasteignasala.is
Sigurbjörg Halla Sigurjónsdóttir, aðstoðarmaður fasteignasala - silla@byrfasteignasala.is
Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.
Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
www.byrfasteign.is | Austurmörk 7, 810 Hveragerði | Byr fasteignasala