BYR fasteignasala kynnir BLÁARGERÐI 7, Egilsstöðum í einkasölu. Nýjar þriggja herbergja íbúðir í tveggja hæða húsi á Egilsstöðum. Ýtið hér fyrir staðsetningu.
ÍBÚÐIRNAR VERÐA TILBÚNAR TIL AFHENDINGAR 30. nóvember 2023.EIGNINNI VERÐUR SKILAÐ SAMKVÆMT SKILALÝSINGU.
Skilalýsingu og allar nánari upplýsingar má nálgast hjá BYR FASTEIGNASÖLU - byr@byrfasteignasala.is // s. 483-5800
Íbúðirnar eru 79,8 - 80,0 m² að stærð. Skipulag eignar: Forstofa, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús, geymsla í sameign.
Forstofa með tvöföldum fataskáp, flísar á gólfi.
Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi.
Útgengt er frá stofu, á neðri hæð á hellulagða sérafnotaverönd, á efri hæð á svalir.
Eldhús með Brúnás innréttingu og eyju. Spanhelluborð á eyju, ofn í vinnuhæð og stálvaskur með einnar handar blöndunartækjum. Gert er ráð fyrir innbyggðum ísskáp og uppþvottavél í innréttingu, framhliðar fylgja með.
Ofan við eyju er tenging fyrir háf og ljós (fylgir ekki).
Svefnherbergin eru tvö, bæði með fataskápum frá Brúnás.
Baðherbergi með flísum á gólfi, sturta, vaskinnrétting og speglaskápur, standandi salerni. Veggir sturtuhorns baðherbergis er flísalagt.
Þvottahús er inn af baðherbergi, pláss fyrir tvær vélar undir borðplötu í vinnuhæð, stakur vaskur á vegg.
Sér geymsla ásamt vagna- og hjólageymslu er á neðri hæð hússins. Innréttingar eru frá Brúnas innréttingum með eikaráferð. Allar innréttingar eru með mjúklokun. Vélrænt útsog er í eldhúsi, baðherbergi og þvottahúsi.
Íbúðir eru hitaðar upp með ofnum, í forstofu og baðherbergi er gólfhiti. Íbúðum verður skilað fullbúinum en án megin gólfefna. Flísar verða á forstofu, baðherbergi og þvottahúsi.
Veggir og loft íbúðarinnar verða máluð í hvítum lit. Reykskynjarar, slökkvitæki og læstur lyfjaskápur fylgja öllum íbúðum.
Bláargerði 7 er níu íbúða tvílyft hús. Útveggir eru forsteyptar MVA einingar. Gólfplötur eru staðsteyptar. Þak er hefðbundið uppstólað risþak, með báruklæðningu. Útihurðar, gluggar og svalahurðar eru timbur/ál með tvöföldu K-gleri frá Scanva.
Lagnaleið er að öllum bílastæðum vegna
rafhleðslustöðva fyrir bifreiðar.
Lóðin er sameiginleg 1239,0 m², gangstétt er hellulögð, annars er lóð þökulögð með grófjöfnuðum gróðurbeðum.
ÍBÚÐIRBláargerði 7A - íbúð 101 neðri hæð. Stærð 79,9 m²
SELDBláargerði 7B - íbúð 102 neðri hæð. Stærð 79,9 m²
kr. 44.500.000.-Bláargerði 7C- íbúð 103 neðri hæð. Stærð 79,8
m²
SELD með fyrirvaraBláargerði 7D - íbúð 104 neðri hæð. Stærð 79,9
m²
kr. 44.900.000.- (endaíbúð)Bláargerði 7C - íbúð 201 efri hæð. Stærð
80,0 m² SELD með fyrirvaraBláargerði 7C - íbúð 202 efri hæð. Stærð 79,9
m² kr. 44.500.000,-Bláargerði 7C - íbúð 203 efri hæð. Stærð
80,0 m² SELD Bláargerði 7C - íbúð 204 efrihæð. Stærð 79,8
m² kr. 44.500.000.-Bláargerði 7C - íbúð 205 efri hæð. Stærð
80,0 m² kr. 44.900.000.- (endaíbúð)Samþykktir aðaluppdrættir hönnuða gilda ef upp kemur misræmi á milli þeirra og annarra gagna.
Allt auglýsingar og kynningarefni t.d. þrívíddar myndir/teikningar eru eingöngu til hliðsjónar.
Athugið að kaupendur greiða stimpil-, þinglýsingar- og lántökugjald vegna kaupsamnings og nýrra lána, auk þjónustu- og umsýslugjalds til fasteignasölunnar.
Um er að ræða eign í byggingu og brunabótamat liggur ekki fyrir, kemur það í hlut kaupanda að greiða skipulagsgjald 0,3% þegar þess verður krafist.
Húsfélag hefur ekki verið stofnað og kemur það í hlut nýrra eigenda að stofna húsfélag vegna sameignar.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 483 5800 - byr@byrfasteignasala.is
Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – elin@byrfasteignasala.is
Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - hronn@byrfasteignasala.is
Sigurbjörg Halla Sigurjónsdóttir, aðstoðarmaður fasteignasala - silla@byrfasteignasala.is
Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.
Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
www.byrfasteign.is | Austurmörk 7, 810 Hveragerði | Byr fasteignasala