BYR fasteignasala kynnir VORSABÆ 3A geymsla nr. 7 í einkasölu. 43,5 m² geymsla í geymsluhúsnæði rétt við Hveragerði á lokuðu svæði. Ýtið hér fyrir staðsetningu. ÁHVÍLANDI VSK-KVÖÐ ER Á EIGNINNI OG MIÐAST SÖLUVERÐ VIÐ YFIRTÖKU Á VSK-KVÖÐ.Frágangur utanhúss:Húsið eru uppbyggt með einangruðum forsteyptum einingum frá Steypustöðinni/Loftorku. Yfirborð útveggja að utan er slétt pússuð/mótaáferð. Birt stærð 43,1 m² samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.
Þak er einingaþak frá Kingspan. Bílaplan er malbikað. Engin skilgreind bílastæði eru á lóðinni.
Gönguhurð og gluggi fyrir ofan eru úr PVC plasti, hvítt að lit.
Innkeyrsluhurð 2,8m á breidd og 2,8 m á hæð, Liftmaster mótor. Gólfflötur er u.þ.b. 5,5 á breidd og u.þ.b. 7,23 á dýpt. Hæð er innst u.þ.b. 4,3 og fremst u.þ.b. 3,4.Girðing er á lóðamörkum og
rafmagnshlið með farsímastýringu við aðkomu ásamt gönguhliði. 24 geymslurými/bílskúrar eru í húsinu. Húsið stendur á skilgreindu athafnasvæði sunnan við Þjóðveg 1.
Frágangur innanhúss:Milliveggir og útveggir að innan eru slétt pússuð/mótaáferð. Veggir eru ósparslaðir en hvítmálaðir með tveimur umferðum.
Lofteiningar eru hvítar að innan og límtrésbitar eru ómeðhöndlaðir. Gólf er demantsslípað og lokað með epoxy 500 gólf með lit.
Sér rafmagnsmælir er fyrir geymslurýmið. Tengitafla er í geymslurýminu. Raflagnir eru utanáliggjandi, þriggja fasa tenglill.
Miðstöðvarofn er í rýminu, hitalagnir eru utanáliggjandi. Tenging fyrir heitt og kalt neysluvatn. Gólfniðurfall, stútur/tenging í gólfi fyrir handlaug og aukastútur/tenging í gólfi fyrir salerni.
Loftræsting: Opnanlegur gluggi er fyrir ofan gönguhurð og ferskloftsventli (innloft) fyrir ofan glugga og útloftsventli með viftu.
Brunavarnir: Steyptir veggir eru á milli notaeininga sem uppfylla allar kröfur um brunavarnir.
Áhvílandi virðisaukaskattskvöð er á eigninni og miðast söluverð eignar við yfirtöku kaupanda á virðisaukaskattskvöð.
Kaupandi yfirtekur virðisaukaskattskvöð þ.e. leiðréttingarskylda vegna eftirstöðva tímabils samkvæmt 14. gr. Reglugerðar nr. 192/1993, að fjárhæð u.þ.b. kr. 1.700.000,-.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 483 5800 - byr@byrfasteignasala.is
Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – elin@byrfasteignasala.is
Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - hronn@byrfasteignasala.is
Sigurbjörg Halla Sigurjónsdóttir, aðstoðarmaður fasteignasala - silla@byrfasteignasala.is
Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.
Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
www.byrfasteign.is | Austurmörk 7, 810 Hveragerði | Byr fasteignasala