BYR fasteignasala kynnir KVÍABÓLSSTÍGUR 1 NEÐRI HÆÐ, 740 Neskaupstaður í einkasölu. Þriggja herbergja íbúð á neðri hæð í tvíbýli, með sér inngangi. Möguleiki er á að kaupa einnig efri hæð hússins, sjá nánar hér um efri hæð hússins.Ýtið hér fyrir staðsetningu. Skipulag eignar: Anddyri, stofa/borðstofa, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, gangur og sameiginlegt inntaksrými/geymsla.
Nánari lýsing:
Anddyri með flísum á gólfi. Þaðan er gengið inn
gang sem leiðir inn í önnur rými.
Eldhús, eldhúsinnrétting með efri og neðri skápum, stálvaskur og eldavél.
Frá eldhúsi er hægt að ganga inn í stofu og einnig frá gangi. Í
stofu eru gluggar sem snúa út í garð, sjávarútsýni.
Svefnherbergi er inn af stofu, vantar hurð á herbergið, parket á gólfi.
Hjónaherbergi með þreföldum fataskáp, parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Vaskinnrétting, skápur, salerni og sturtuklefi. Pláss fyrir eina þvottavél á upphækkuðum palli.
Sameiginlegt lagnarými/geymsla er inn af gangi. Þar er hitakútur hússins og geymslurými með hillum. Málað gólf. Efri hæð hússins hefur aðgang að þessu rými í gegnum lúgu frá anddyri efri hæðar.
Rafmagnstafla með öllum mælum er á gangi íbúðar.
Húsið er tveggja hæða tvíbýlishús, staðsteypt með einhalla þaki. Stór gróinn garður, steyptur veggur er framan við hús að bílastæði eignarinnar.
Möl er í bílaplani, pláss fyrir tvær bifreiðar.
Lóðin er sameiginleg leigulóð, lóðarleigusamningur til 50 ára frá árinu 2003.
Íbúðin er í útleigu, möguleiki er á að yfirtaka leigusamning sem er á eigninni. Stór hluti af innbúi fylgir neðri hæðar fylgir með, meðal annars þvottavél, sófi og rúm.
Skráning eignarinnar hjá Þjóðskrá Íslands (HMS):Stærð: Íbúð 91.2 m².
Brunabótamat: 32.650.000kr.
Fasteignamat: 20.700.000 kr. Fyrirhugað fasteignamat ársins 2024 er kr. 24.750.000.-
Byggingarár: Íbúð 1943
Byggingarefni: Steypa
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 483 5800 - byr@byrfasteignasala.is
Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – elin@byrfasteignasala.is
Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - hronn@byrfasteignasala.is
Sigurbjörg Halla Sigurjónsdóttir, aðstoðarmaður fasteignasala - silla@byrfasteignasala.is
Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.
Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
www.byrfasteign.is | Austurmörk 7, 810 Hveragerði | Byr fasteignasala