Elín Káradóttir
Eigandi og löggiltur fasteignasali
Símanúmer: 859-5885
elin@byrfasteign.is
Árvegur 36 , 805 Selfoss
29.900.000 Kr.
Sumarhús
2 herb.
8238 m2
29.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2017
Brunabótamat
24.750.000
Fasteignamat
21.980.000

BYR fasteignasala kynnir í einkasölu ÁRVEGUR 36, Grímsnes og Grafningshreppi 805 Selfoss. SUMARHÚS á EIGNARLÓÐ í sumarbústaðalandi rétt við Sólheima með ÚTSÝNI
Trjágróður hefur verið gróðursettur á lóðinni. Grímsnesið er eitt stærsta frístundarhúsabyggðarsvæði landsins, stutt í afþreyingu og útivist, s.s. golfvelli í Öndverðarnesi og Kiðjabergi.
 Ýtið hér fyrir staðsetningu. 
Meðfram lóðinni renna árnar Djúpá og Brúará. Ekið er að húsinu frá þjóðvegi 35 Biskupstungnabraut, síðan er ekið um þjóðveg 354 Sólheimavegur austan við Svínavatn að Árvegi. 
Sumarhúsið er timburhús, byggt árið 2017, 38,5 m², samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands. Við húsið stendur lítið gestahús, u.þ.b. 7 m² að stærð.
Skipulag eignar: Anddyri, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, eitt svefnherbergi og baðherbergi. 

Nánari lýsing: 
Anddyri með dúk á gólfi.
Alrými með eldhúsi, stofu og borðstofu, harðparket á gólfi, útgengt er út á timburverönd frá alrými. 
Eldhús, eldhúsinnrétting, eldavél, uppþvottavél, frystir og þvottavél fylgir. 
Eitt svefnherbergi, harðparket á gólfi. 
Baðherbergi, dúkur á gólfi, vegghengt salerni, sturta og vaskinnrétting. Hitakútur er staðsettur á baðherbergi. 
Húsið er kynt með varmadælu „loft í loft“ og rafmagnsofnum. U.þ.b. 50 L hitakútur fyrir neysluvatn er við húsið. 

Húsið er timburhús, klætt að utan með standandi bárujárnsklæðningu. Bárujárn á þaki. Timburverönd umlykur húsið á öllum hliðum. Við timburveröndina stendur lítið gestahús, u.þ.b. 7m² að stærð.

Lóðin er gróin og stendur innarlega við botnlanga í skipulögðu sumarbústaðalandi. Lóðin er 6600,0 m², eignarlóð. Bílastæði fyrir þrjár bifreiðar. 
Samkvæmt deiliskipulagi svæðisins má byggja á lóðinni allt að 100 m² sumarhús, heimilt er að reisa geymslu, svefnhús og gróðurhús þó ekki stærri en 10-15 m². Aðeins er heimilt að reisa eitt hús ásamt útihúsi innan hvers byggingarreits.
Sjá hér deiliskipulag Kringla II Grímsnesi, lóðir undir frístundabyggð.
Sjá í landeignaskrá land númer 220991: https://geo.fasteignaskra.is/landeignaskra/220991. 

Ýtið hér til að sjá sumarhúsalóðir til sölu á svæðinu.


ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 483 5800 - byr@byrfasteignasala.is 
Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – elin@byrfasteignasala.is
Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - hronn@byrfasteignasala.is


Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.

Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.        
Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
 
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi -  0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga  / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

www.byrfasteign.is |  Austurmörk 7, 810 Hveragerði - Miðvangur 2-4, 700 Egilsstaðir | Byr fasteignasala

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.