Elín Káradóttir
Eigandi og löggiltur fasteignasali
Símanúmer: 859-5885
elin@byrfasteign.is
Hólmabrún 3 , 810 Hveragerði
69.900.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á einni hæð
5 herb.
223 m2
69.900.000
Stofur
3
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
0
Inngangur
Sér
Byggingaár
0
Brunabótamat
0
Fasteignamat
13.650.000

BYR fasteignasala kynnir í einkasölu HÓLMABRÚN 3 Hveragerði. Sjö herbergja einbýlishús á einni hæð með innbyggðum bílskúr í nýju hverfi í útjaðri Hveragerðis. Góð staðsetning austarlega í nýju hverfi í Hveragerði, stutt í leikskólann Undraland, grunnskólann og alla almenna þjónustuÝtið hér fyrir staðsetningu.
GOTT SKIPULAG FYRIR STÓRA FJÖLSKYLDU. MÖGULEIKI ER Á AÐ SKIPTA HÚSINU UPP Í TVÆR ÍBÚÐIR OG LEIGJA ÞÁ ÚT ÞRIGGJA HERBERGJA ÍBÚÐ MEÐ SÉRINNGANGI, SJÁ RAUÐMERKT Í AUGLÝSINGU. 

HÚSIÐ VERÐUR AFHENT FOKHELT Þ.E. Á BYGGINGARSTIGI 4, MATSSTIGI 4 SAMKVÆMT ÍST 51:2001. Húsið er selt samkvæmt skilalýsingu seljanda. 

Teikningar gera ráð fyrir eftirfarandi skipulagi: Anddyri, alrými með stofu, borðstofu, eldhúsi og setustofu (möguleiki á að útbúa 5 svefnherbergið), hjónasvíta með fataherbergi og baðherbergi innaf, þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, þvottahús og geymsla, gangur, auka anddyri, annað alrými með stofu og eldhúsi, bílgeymsla.

Húsið verður staðsteypt, á einni hæð. Útveggir, gert er ráð fyrir ljósri áferð, kvarsaðir fletir og sjónsteypa að hluta. Húsið er einangrað að innan og því verður  Gert er ráð fyrir að hurðar og gluggar verði hvítt að lit. Þak er léttbyggt timburþak.
Þaksperrur eru 245x45mm. Ofan á borðaklæðningu kemur þakpappi og málmklæðning. Þakkantur verður ófrágenginn. 
Gluggar eru trégluggar með tvöföldu K-gleri. Gluggar verða grunnaðir að innan en álkæddir að utan, öll opnanleg fög eru úr áli. Útihurðar eru áli. Lóð verður grófjöfnuð. Opið sorptunnuskýli er rúmar þrjú sorpílát fylgir.
Gert er ráð fyrir gólfhita í öllu húsinu. Gólfhitakista er ekki uppsett. Ídráttarrör fyrir hita, rafmagn kalt vatn og nettengingar verða fyrir hendi. 

Tölvuteikningar eru eingöngu til viðmiðunar, en endurspegla ekki endilega endanlegt útlit eignarinnar. 
Samþykktir aðaluppdrættir hönnuða eru gildandi ef upp kemur misræmi á milli þeirra og annarra gagna. Allt auglýsinga og kynningarefni t.d. þrívíddar myndir/teikningar og litir í þeim eru eingöngu til hliðsjónar ekki er um endanlegt útlit að ræða.  Athygli er vakin á því að á meðan byggingarframkvæmdum stendur áskilur seljandi sér allan rétt til að gera tækni-, efnis- og útlitsbreytingar. Allt myndefni birt með fyrirvara – byggingarnefndarteikningar gilda.


Fyrirliggjandi teikningar af húsinu má nálgast hér. Samþykktar teikningar frá VHÁ Verkfræðistofu ehf fylgja.

ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR HJÁ BYR FASTEIGNASÖLU 483-5800 EÐA byr@byrfasteignasala.is


ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 483 5800 - byr@byrfasteignasala.is 
Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – elin@byrfasteignasala.is
Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - hronn@byrfasteignasala.is


Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.

Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.        
Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
 
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi -  0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga  / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

www.byrfasteign.is |  Austurmörk 7, 810 Hveragerði - Miðvangur 2-4, 700 Egilsstaðir | Byr fasteignasala

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.