Elín Káradóttir
Eigandi og löggiltur fasteignasali
Símanúmer: 859-5885
elin@byrfasteign.is
Hraunhólar 5 , 800 Selfoss
72.900.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á einni hæð
4 herb.
145 m2
72.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2008
Brunabótamat
67.400.000
Fasteignamat
76.000.000

BYR fasteignasala kynnir í einkasölu HRAUNHÓLAR 5 , 800 Selfoss. Fjögurra herbergja raðhús með innbyggðum bílskúr í grónu hverfi á Selfossi.
Húsið stendur við botnlanga, suðurgarður, stutt í alla helstu þjónustu m.a. leikskóla og grunnskóla. Ýtið hér fyrir staðsetningu. 

Skipulag eignar: Anddyri, stofa og borðstofa, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, hol, þvottahús og bílskúr, geymsla. 

Nánari lýsing: 
Anddyri með tvöföldum fataskáp, innangengt er í forstofuherbergi frá anddyri.
Stofa og borðstofa eru saman í rými, útgengt er frá stofuhluta út á hellulagða verönd til suðurs. 
Eldhús, með rúmgóðri innréttingu AEG helluborð, háfur og ofn í vinnuhæð. AEG uppþvottavél getur fylgt ef vill. 
Svefnherbergin eru þrjú.
Hjónaherbergi er með fjórföldum fataskáp. 
Barnaherbergin eru tvö, bæði þeirra eru með einföldum fataskáp. 
Baðherbergi er rúmgott flísalagt í hólf og gólf, hornbaðkar, sturta, vegghengt salerni, rúmgóð vask innrétting og handklæðaofn. 
Hol, þaðan er gengið inní baðherbergi, svefnherbergi og þvottahús.
Þvottahús með innréttingu, hækkun fyrir tvær vélar, stálvaskur í borði, innangengt er í bílskúr frá þvottahúsi.
Bílskúr, rafræn opnun tvær fjarstýringar fylgja, rafrænn hnappur á vegg í bílskúr, inntök eru í bílskúr, rafmagnstafla og gólfhitagrind, geymsla er innst í bílskúr, útgengt er úr bakhluta bílskúrs út í bakgarð. 
Gólfefni: Eikarparket er á stofu, borðstofu, eldhúsi, holi, hjónaherbergi og öðru herberginu. Flísar eru á anddyri, baðherbergi, forstofuherbergi, þvottahúsi og bílskúr, geymslu
Húsið er upphitað með gólfhita, Danfoss stýringar á veggjum.
Gardínur, strimlagardínur og sólargardínur fylgja.

Raðhúsalengjan Hraunhólar 1-7 samanstendur af 4 raðhúsaíbúðum. Húsið er timburhús, klætt að utan með hvítri Duropalklæðningu, aluzink á þaki. Gróin garður, Hellulögð verönd u.þ.b. 40 m² er í bakgarði til suðurs.
Möl er í bílaplani, pláss fyrir tvær bifreiðar, aðkoma að húsi er hellulögð, sorptunnuskýli fyrir eina tunnu er framan við hús. 

Skráning hússins hjá HMS:
Stærð: Íbúð 108.6 m². Bílageymsla 36.7 m². Samtals 145.3  m².
Brunabótamat: 67.400.000 kr.
Fasteignamat: 76.000.000 kr
Byggingarár: 2008
Byggingarefni: Timbur. 


ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 483 5800 - byr@byrfasteignasala.is 
Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – elin@byrfasteignasala.is
Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - hronn@byrfasteignasala.is


Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.

Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.        
Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
 
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi -  0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga  / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

www.byrfasteign.is |  Austurmörk 7, 810 Hveragerði - Miðvangur 2-4, 700 Egilsstaðir | Byr fasteignasala

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.