Elín Káradóttir
Eigandi og löggiltur fasteignasali
Símanúmer: 859-5885
elin@byrfasteign.is
Langahraun 17 íbúð 101 , 810 Hveragerði
67.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
4 herb.
115 m2
67.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2022
Brunabótamat
60.100.000
Fasteignamat
56.600.000

BYR fasteignasala kynnir í einkasölu LANGAHRAUN 17 ÍBÚÐ 101, 810 Hveragerði. Ný fjögurra herbergja íbúð með sérinngangi í nýju hverfi, Kambaland í Hveragerði. 
Stutt er í alla almenna þjónustu og útivistarsvæði. Smellið hér fyrir staðsetningu. 


ÍBÚÐ 101 neðri hæð. Íbúð 101,1 m² og geymsla 14,8 m² samtals 115,9 m² samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag eignar: Anddyri, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og sérgeymsla. Í sameign er hjóla- og vagnageymsla.

Nánari lýsing: 
Anddyri með fataskáp. Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, útgengt er úr stofu út á hellulagða verönd (sérnotareitur) til suðurs, skjólveggur er á milli íbúða á neðri hæð.
Eldhús með HTH innréttingu, eyja með helluborði, háfur er yfir eyju. Ofn í vinnuhæð, gert er ráð fyrir innbyggðum ísskáp og frysti ásamt innbyggðri uppþvottavél, fylgja hurðar á innbyggð tæki.
Svefnherbergin eru þrjú. Hjónaherbergi með fjórföldum HTH fataskáp. Tvö svefnherbergi bæði með tvöföldum HTH fataskáp. 
Baðherbergi, HTH innrétting, vegghengt salerni, sturta og handklæðaofn, vegghorn sturtu eru flísalögð.
Þvottahús er innan íbúðar, tengill fyrir þvottavél og þurrkara, handklæðaofn. 
Geymsla er aftan við húsið, gengið er inn í geymslu frá verönd (sérnotareit), gluggi er á geymslu.
Gólfefni: Harðparket á öllum nema baðherbergi, flísar eru á baðherbergi. 
Hjóla- og vagnageymsla og inntaksrými er í sameign. 

Húsið er tveggja hæða 5 íbúða fjölbýlishús, steinsteypt og klætt að utan. Á fyrstu hæð eru tvær íbúðir, fimm geymslur ásamt inntökum og sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Á annarri hæð eru þrjár íbúðir. 
Húsið er klætt að utan með brúnleitri liggjandi báruklæðningu og sléttri svartri málmklæðningu að hluta. Þak er viðsnúið pvc þak með fargi. Gluggar eru á/tré gluggar, hvítir á lit að innan, svartir að utan. Útihurðar íbúðar eru tréhurðar. 
10 sameiginleg bílastæði eru á lóð þar af eitt fyrir hreyfihamlaða. Lóð er þökulögð og gróðurbeð jöfnuð án gróðurs. Bílastæði eru malbikuð með „skjólvegg", hellulagt er að húsi. Sorptunnuskýli er á lóð fyrir 3. stk 660 l. sorpílát. 
Gert er ráð fyrir möguleika á hleðslustöð-vum fyrir rafbíla en hleðslustöðin sjálf er ekki uppsett. 
Húsið er hannað á grundvelli algildrar hönnunar, í öllum íbúðum er hægt að uppfylla skilyrði um algilda hönnun með einföldum breytingum.

Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:
Stærð: 01.0101 Íbúð 101,1 m². 01.0105 Geymsla 14,8 m². Samtals 115,9 m².
Brunabótamat: 61.300.000 kr.
Fasteignamat: 62.300.000 kr.  
Byggingarár: 2022
Byggingarefni: Steypa.


ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 483 5800 - byr@byrfasteignasala.is 
Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – elin@byrfasteignasala.is
Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - hronn@byrfasteignasala.is


Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.

Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.        
Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
 
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi -  0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga  / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

www.byrfasteign.is |  Austurmörk 7, 810 Hveragerði - Miðvangur 2-4, 700 Egilsstaðir | Byr fasteignasala

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.