Elín Káradóttir
Eigandi og löggiltur fasteignasali
Símanúmer: 859-5885
elin@byrfasteign.is
Hnjúkamói 8 íbúð 203 , 815 Þorlákshöfn
46.800.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
3 herb.
70 m2
46.800.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
0
Brunabótamat
0
Fasteignamat
2.260.000

BYR fasteignasala kynnir HNJÚKAMÓA 8  ÍBÚÐ 203, Þorlákshöfn. TILBÚIN TIL AFHENDINGAR Í APRÍL 2024.
Ný þriggja herbergja íbúð á efri hæð með sérinngang. Góð staðsetning miðsvæðis í Þorlákshöfn , stutt í alla almenna þjónustu og útivistarsvæði. Smellið hér fyrir staðsetningu. 

**HLUTDEILDARLÁN Í BOÐI - SMELLIРHÉR FYRIR UPPLÝSINGAR UM HLUTDEILDARLÁN
***BÓKIÐ SÝNINGU MEÐ ÞVÍ AÐ SENDA TÖLVUPÓST Á BYR@BYRFASTEIGNASALA.IS EÐA Í SÍMA 483-5800**

*Íbúðin er 70,5 m² þar af geymsla 6,7 m² samkvæmt skráningu HMS.
*Skipulag eignar: Anddyri, alrými með stofu og eldhúsi, tvö svefnherbergi, baðherbergi og geymsla.
*EIGNINNI VERÐUR SKILAÐ SAMKVÆMT SKILALÝSINGU,  fullbúin án megin gólfefna. 
* Smellið hér til að opna sölusíðu Móabyggðar

Nánar um íbúð: 

Anddyri með tvöföldum fataskáp.
Alrými með stofu og eldhúsi. Útgengt er út svalir frá stofu.
Eldhús með Svansvottaðri HTH innréttingu. Heimilistæki eru vönduð af AEG gerð, spanhelluborð, bakaraofn með sjálfhreinsikerfi. Stálvaskur með einnar handar blöndunartæki. Gert er ráð fyrir að hægt sé að vera með innbyggða uppþvottavél og ísskáp + frysti.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með fataskáp. Fataskápar ná upp í loft með aðfellu. Innvols innréttinga og fataskápa er hvítt, grindur í fataskápum eru krómaðar
Baðherbergi, flísalagt gólf, hluti veggja, sturtuhorn er flísalagt með 30x60 flísum. Vegghengt salerni, baðinnrétting með handlaug í borði og einnar handar blöndunartæki, sturta og handklæðaofn. Tengi fyrir þvottavél er á baðherbergi. 
Sérgeymsla 6,7 m² er í sameiginlegu geymslurými á neðri hæð hússins. 
Íbúðinni fylgir sérnotaréttur af einu bílastæði á sameiginlegri bílastæðalóð. Lagnaleið fyrir rafhleðslustöðvar liggja úr hverju húsi að bílastæðum þess húss. 

Nánar um húsið. Hnjúkamói er átta íbúða tvílyft hús.  Allir útveggir ásamt berandi innveggjum og milligólf eru staðsteypt. Gólfplötur milli íbúða eru staðsteyptar einnig eru stigar, svalir og svalagangar staðsteypt eða steypueiningar með endanlegu yfirborði.
Útveggir eru einangraðir að utan og klæddir með smábáru og sléttri málmklæðningu að hluta. Þak er viðsnúið með pvc dúk. Á hvorri hæð eru þrjár íbúðir og þrjár geymslur ásamt sameiginlegu tæknirými. Tveir stigar liggja upp á efri hæð.

Smellið hér til að sjá fleiri íbúðir til sölu í Móabyggð, stærðir íbúða eru frá 67,7 m² -95,8 m²
Allar íbúðir hafa sér inngang og sér bílastæði með möguleika á uppsetningu hleðslustöðva. 6-8 íbúðir eru í hverju húsi. Í Móabyggð rís ný lágstemmd byggð tveggja hæða fjölbýlishúsa
Móabyggð fyrsti áfangi, afmarkast af Hnjúkamóa í suðri, Klettamóa í norðri og Rásamóa í austri. Göturnar Hnjúkamói og Klettamói eru tengdar saman með vistgötum. Malbikuð bílastæði eru við Hnjúkamóa, Klettamóa, Rásamóa og í vistgötum. Auk þess eru gestastæði á svæðinu. Miðsvæðis milli bygginga er dvalarsvæði ætlað til útivistar og leiksvæði.

Athygli er vakin á því að á meðan byggingarframkvæmdum stendur áskilur seljandi sér allan rétti til að gera tækni-, efnis- og útlitsbreytingar ásamt breytingum á aðaluppdráttum.
Allt auglýsingar og kynningarefni t.d. þrívíddar myndir/teikningar eru eingöngu til hliðsjónar.
Ljósmyndir eru úr sambærilegri eign í sambærulegu húsi frá sama verktaka og eru því eingöngu til viðmiðun
ar.


ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 483 5800 - byr@byrfasteignasala.is 
Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – elin@byrfasteignasala.is
Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - hronn@byrfasteignasala.is


Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.

Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.        
Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
 
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi -  0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga  / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

www.byrfasteign.is |  Austurmörk 7, 810 Hveragerði - Miðvangur 2-4, 700 Egilsstaðir | Byr fasteignasala

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.