Elín Káradóttir
Eigandi og löggiltur fasteignasali
Símanúmer: 859-5885
elin@byrfasteign.is
Langahraun 15 íbúð 203 , 810 Hveragerði
59.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
4 herb.
102 m2
59.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2022
Brunabótamat
55.450.000
Fasteignamat
57.450.000

BYR fasteignasala kynnir í einkasölu LANGAHRAUN 15 ÍBÚÐ 203, í Hveragerði. Fjögurra herbergja íbúð á annarri hæð í nýju hverfi sem kallast Kambaland.
Vel skipulögð íbúð á efri hæð í nýju hverfi við Kambana í Hveragerði með útsýni. Stutt í alla helstu þjónstu, afþreyingu og útivist. Ýtið hér fyrir staðsetningu. 


ÍBÚÐ 203, ÖNNUR HÆÐ. Stærð íbúðar samkvæmt skráningu HMS er samtals 102,5 m², sem skiptist í íbúð 95,0 m² og geymslu á fyrstu hæð 7,5 m². Sérinngangur er í íbúðina.
Skipulag eignar: Anddyri, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, þrjú svefnherbergi, fataherbergi, baðherbergi og geymsla. Í sameign er sérgeymsla. 
LAUS TIL AFHENDINGAR 15 MAÍ 2024.

Anddyri með fataskáp.
Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi. Útgengt er frá stofu á svalir. 
Eldhús með keramik helluborði og ofni, stálvaskur og blöndurnartæki með handúðara, gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu.
Hjónaherbergi með fataherbergi er inn af stofu/alrými, fataherbergi er í dag nýtt sem barnaherbergi. 
Barnaherbergin eru tvö, bæði með fataskáp. 
Baðherbergi með innréttingu, handlaug og blöndunartæki ofan á borði, vegghengt salerni, sturta og handklæðaofn. 
Tenging fyrir þvottavél og þurrkara er á baðherbergi. 
Geymsla er í sameign á jarðhæð, ásamt sameigninlegri geymslu/inntaksrými. 
Gólfefni: Harðparket er á gólfum alrýmis og svefnherbergja. Gólf baðherbergis er flísalagt.
Allar hurðar eru yfirfelldar og hvítar að lit frá Birgisson. Vélræn loftræsting (útsog) er frá eldhúsi og baðherbergi.

Húsið er byggt úr forsteyptum samlokueiningum, útveggir eru ljósgráir að lit. Burðarvirki þaks eru forsteyptar holplötur með þakdúk, þak er einhalla. Hurðir og gluggar eru timburgluggar frá BYKO, svartir að lit.
Handrið og svalahandrið eru stálhandrið, álklædd, svört að lit að utanverðu. Framan við hús er hellulögð gönguleið. Lóð verður þökulögð og gróðurbeð jöfnuð án gróðurs. 
11 bílastæði eru í sameign á lóð þar af eitt sér merkt stæði fyrir hreyfihamlaða.
Gert er ráð fyrir möguleika á hleðslustöð-vum fyrir rafbíla en hleðslustöðin sjálf er ekki uppsett. 


ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 483 5800 - byr@byrfasteignasala.is 
Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – elin@byrfasteignasala.is
Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - hronn@byrfasteignasala.is


Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.

Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.        
Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
 
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi -  0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga  / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

www.byrfasteign.is |  Austurmörk 7, 810 Hveragerði - Miðvangur 2-4, 700 Egilsstaðir | Byr fasteignasala

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.