BYR fasteignasala kynnir BÚÐAVAÐ 14, 110 Reykjavík í einkasölu. Parhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr og 31,1 m² suður svölum með útsýni að Elliðavatni og fjallahringinn.
Stutt er í fallegar gönguleiðir, hjóla- og göngustígar eru í allar áttir út úr hverfinu. Ýtið hér fyrir staðsetningu. Húsið er steypt, byggt árið 2008 með innbyggðum bílskúr. Húsið skiptist í parhús 188,3 m² og bílskúr 30,7 m², samtals 219.0 m² samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag eignar: Anddyri, Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, þrjú svefnherbergi, alrými/sjónvarpsherbergi, tvö baðherbergi, þvottahús, stigahús og innbyggður bílskúr.
Nánari lýsing: Efri hæð:
Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi flísar á gólfi, útgengt er úr alrými á rúmgóðar suður svalir með útsýni til fjalla og að Elliðavatni.
Eldhús með rúmgóð innrétting, Whirlpool spanhelluborð, Whirlpool ofn í vinnuhæð, Gorenje háfur, innbyggð Asko uppþvottavél, innbyggður ísskápur og búrskápur.
Tvö svefnherbergi eru á efri hæð.
Hjónaherbergi með sexföldum fataskáp uppí loft, parket á gólfi.
Barnaherbergi með tvöföldum fataskáp, parket á gólfi.
Baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf, vaskinnrétting og línskápur, sturta, vegghengt salerni og handklæðaofn.
Teppalagður
stigi liggur niður á neðri hæð hússins, innbyggð lýsing er í stiga.
Neðri hæð:
Anddyri er rúmgott með gólfsíðum gluggum, fjórfaldur fataskápur, flísar á gólfi. Frá anddyri er innangengt í bílskúr.
Gangur flísalagður liggur frá anddyri að öðrum rýmum neðri hæðar.
Á neðri hæð er
alrými/sjónvarpsherbergi
með eldhúsinnréttingu „kitchenette", var áður tvö svefnherbergi, parket á gólfi. Útgengt er úr alrýminu í bakgarð, flísar á gólfi við útgang.
Í eldhúsinu er stálvaskur og Gorenje eldavél.
Svefnherbergi er innaf alrými, sexfaldur fataskápur uppí loft, parket á gólfi.
Baðherbergi, flísar á gólfi, vaskinnrétting, vegghengt salerni og sturta, flísar á hluta veggja.
Þvottahús með innréttingu, hækkun fyrir tvær vélar, stálvaskur í borði, veggskápar, flísar á gólfi. Útgengt er úr þvottahúsi.
Bílskúr, málað gólf, innangengt er úr anddyri í bílskúr, millilloft er í bílskúr, heitt og kalt vatn. Inntak á heitu vatni og rafmagnstafla er í bílskúr. Útgengt er úr bílskúr um gönguhurð við hlið inngangs.
Gólfefni: Parket á svefnherbergjum og alrými neðri hæðar. Flísar á alrými efri hæðar, gangi, baðherbergjum og anddyri. Teppi á stiga. Málað gólf á bílskúr.
Aukin lofthæð er í eigninni á efri og neðri hæð.
Allar innréttingar, fataskápar og innihurðar eru sérsmíðaðar frá SBS innréttingum. Gólfhiti er í allri eigninni.
Danfoss gólfhitastýringar eru á veggjum í öllum rýmum nema bílskúr.
Innbyggð lýsing er í alrými efri hæðar, hjónaherbergi, baðherbergi og gangi neðri hæðar.
Húsið er staðsteypt parhús á tveimur hæðum, byggt árið 2008. Húsið var málað að utan vorið 2023. Svalir voru flísalagðar sumarið 2022 með flísum frá Álfaborg á „ dregurum"
Bílastæði við húsið eru þrjú hellulögð,
Hiti er í bílaplani. Hellulagt er meðfram allri hlið hússins og í bakgarði. Uppsett hleðslustöð við húsið fylgir ekki.
Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS.Stærð: Íbúð 188,3 m², bílskúr 30,7 m², samtals 219.0 m².
Brunabótamat: 92.420.000 kr.
Fasteignamat:143.800.000 kr
Byggingarár: 2008
Byggingarefni: Steypa
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 483 5800 - byr@byrfasteignasala.is
Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – elin@byrfasteignasala.is
Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - hronn@byrfasteignasala.is
Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.
Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
www.byrfasteign.is | Austurmörk 7, 810 Hveragerði - Miðvangur 2-4, 700 Egilsstaðir | Byr fasteignasala